Helvítis Hot Ones kvöld á Sæta Svíninu!

Matreiðslumaðurinn Ívar Örn Hansen, betur þekktur sem Helvítis Kokkurinn verður með glænýjan og skemmtilegan viðburð þar sem þátttakendur fá ljúffenga vængi með mis sterkum sósum úr vinsælu þáttunum Hot Ones, þáttaröð 24.

Tíu sjóðheitir vængir hver öðrum sterkari, þrjár tegundir af svalandi bjór frá Bruggsmiðjunni Kalda ásamt einum sérstökum Helvítis væng!

Ræður þú við alla tíu? Það er bara ein leið til að komast að því!

Hlekkur á þættina á Youtube: https://www.youtube.com/@FirstWeFeast

Helvítis Hot Ones kvöldin á Sæta Svíninu eru haldin fimmtudaginn 30. janúar og fimmtudaginn 6. febrúar frá kl. 18:00 – 20:30 og kosta 11.900 kr. á mann.

Aldurstakmark er 20 ár.

Tryggðu þér miða hér: https://tix.is/event/18906/helvitis-hot-ones-kvold-a-saeta-svininu