Heim / Sæta svínið
Sæta svínið
Hæ og velkomin
Sæta svínið er Gastropub þar sem þú getur droppað við í hádeginu, í eftirmiðdaginn eða á kvöldin í drykk og hágæða mat í skemmtilegri og afslappaðri stemningu.
Við leggjum áherslu á bragðgóðan mat búin til úr fyrsta flokks hráefnum og gott úrval af bjór, víni og kokteilum til að njóta með matnum.
Sæta teimið
Yfirmatreiðslumaður er sælkerinn og svínslega hressi gaurinn Guðmundur Melberg Loftsson
Leifur Welding sá um innanhússhönnun Sæta Svínsins og var aðaláherslan á afslappaða og notarlega stemningu og staðinn príða fullt af sætum svínum sem vinir, vandamenn og gestir hafa fært okkur til að skreyta.
Jón Páll listamaður skapaði Sæta svínið og Gréta Ösp grafískur hönnuður merkið.